Stefnumótandi ráðgjöf

Skýrleiki í mikilvægum ákvörðunum

Ankh ehf. veitir stefnumótandi ráðgjöf þar sem ákvarðanir skipta máli og ákvarðanir eru flóknar, áhrif þeirra veruleg og mikilvægt er að skapa skýra mynd af valkostum áður en ákvörðun er tekin

Unnið er á mótum stefnu, stjórnarhátta og samninga — þar sem stefnumótun, hvatar, ábyrgð og framkvæmd þurfa að falla saman.

Vinn með fyrirtækjum, eigendum og stjórnum að málum þar sem ákvarðanir hafa veruleg áhrif og flækjustig er hátt.

Verkefnin liggja á mótum stefnu, stjórnarhátta og samninga — þar sem stefnumótun, hvatar, ábyrgð og framkvæmd þurfa að falla saman.

Slík verkefni snúa oft að lykilákvörðunum þar sem stefnumótun, samningar og hagsmunir ólíkra aðila þurfa að falla saman.

Verkefnin snúa oft að mótun og mati á mikilvægum ákvörðunum, uppbyggingu og greiningu samninga, samningaviðræðum og aðkomu að stefnumótun og stjórnarstarfi. Slík verkefni snúa oft að lykilákvörðunum þar sem stefnumótun, samningar og hagsmunir ólíkra aðila þurfa að falla saman. Markmiðið er að skapa skýra mynd af valkostum, áhættu og áhrifum og styðja við vandaðar ákvarðanir á stjórnenda- og stjórnarstigi.

Helstu verksvið

Stefnumótun og ráðgjöf

Stuðningur við stefnu, forgangsröðun og krefjandi ákvarðanir.

Stjórnarhættir

Undirbúningur stjórnarstarfa, umgjörð ákvarðana og skýr ábyrgð.

Flóknir samningar

Yfirsýn og stuðningur í samningum, viðræðum og skipulagi.

Viðskiptaþróun

Ráðgjöf þar sem stefna, vöxtur og framkvæmd þurfa að vinna saman.

Um Ankh

Ankh er ráðgjafarfyrirtæki Jóhanns Sveins Sigurleifssonar.

Jóhann hefur yfir 15 ára reynslu á sviði stefnumótunar, viðskiptaþróunar, stjórnarhátta og samninga, með víðtæka reynslu úr fjarskiptum, upplýsingatækni, innviðum og tengdum mörkuðum. Hann hefur starfað bæði innan fyrirtækja og sem ráðgjafi.

Hann starfaði í 13 ár hjá Ljósleiðaranum og vann þar náið með framkvæmdastjóra og stjórn að stefnumótun, samningum, markaðsþróun, innviðaverkefnum og lykilákvörðunum sem höfðu áhrif á þróun félagsins. Verkefnin náðu meðal annars til:

  • Stefnumótunar og langtímaáætlana
  • Flókinna samninga og samningaviðræðna
  • Stjórnarundirbúnings og stjórnarstarfs
  • Viðskipta- og vöruþróunar
  • Stórra innviðaverkefna
  • Samruna og yfirtaka
Þessi reynsla hefur veitt djúpan skilning á samspili stefnu, stjórnarhátta og samninga — og hvernig þessir þættir móta ákvarðanir og framkvæmd á stjórnenda- og stjórnarstigi.

Stjórnir og stjórnarhættir

Ankh vinnur einnig með málefni sem snúa að stjórnum og stjórnarháttum.

Bakgrunnurinn nýtist vel þar sem þörf er á vönduðum undirbúningi, skýrri greiningu og yfirveguðu mati á valkostum og áhrifum þeirra.