Reynsla

Yfir 15 ára reynsla af stefnumótun, viðskiptaþróun, stjórnarháttum, samningum og mati á flóknum viðskiptaákvörðunum.

Unnið með framkvæmdastjórnum og stjórnum að fjölbreyttum verkefnum sem höfðu bæði rekstrarlega og stefnumótandi þýðingu fyrir félögin.

Verkefnin náðu meðal annars til stefnumótunar, flókinna samninga og samningaviðræðna, stjórnarundirbúnings, markaðs- og viðskiptaþróunar, stórra innviðaverkefna og verkefna tengdra samruna og yfirtöku.

Félagið hefur komið að verkefnum þar sem þörf er á sjálfstæðu mati, skýrri framsetningu og vandaðri ákvarðanatöku.

Reynslusvið

Reynslan er þverfagleg og nýtist í verkefnum þvert á markaði og atvinnugreinar. Hún snýst ekki um einn geira, heldur um það hvernig greina megi valkosti, ramma inn ákvarðanir og byggja upp trausta umgjörð þegar miklir hagsmunir eru undir.